Útvarpsleikhúsið: Litlu jólin
eftir leikhópinn Kriðpler.
Bónusferðin er útvarpsleikrit í tveimur hlutum eftir leikhópinn Kriðpleir. Hlustið hér.
Jólabókaflóðið er yfirstaðið og Ragnar hefur verið ráðinn til að sækja óseld eintök af bókinni „Bakað úr súrdeigi“ í helstu Bónusbúðir á landsbyggðinni. Bókaútgáfan vill að hann ljúki verkinu á nokkrum sólarhringum, en ferðaáætlunin fer öll úr skorðum eftir að Ragnar leyfir vinum sínum, Árna og Friðgeiri, að fljóta með sér í sendibílnum. Fyrr en varir er fremur einfalt verkefni orðið að flóknu vandamáli sem teygir anga sína langt út fyrir hringveginn og færir þá loks til fundar við manneskju sem reynist vera örlagavaldur íslenskra rithöfunda fyrir hver einustu jól.
Persónur og leikendur:
Ragnar - Ragnar Ísleifur Bragason.
Árni - Árni Vilhjálmsson.
Friðgeir - Friðgeir Einarsson.
Dögg - Ragnheiður Maísól Sturludóttir.
Ásta - Ragnheiður Skúladóttir.
Orri sponsor - Þór Birgisson.
Benni Hemm Hemm - Benedikt Hermann Hermannsson.
Heitasta skvísan á Selfossi - Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Handrit og leikstjórn:
Bjarni Jónsson, Árni Vilhjálmsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Friðgeir Einarsson.
Tónlist: Árni Vil.
Hljóðupptaka: Gísli Kjaran Kristjánsson.
//
A Trip to Bónus
radio drama by Kriðpleir
Written and directed by: Árni Vilhjálmsson, Bjarni Jónsson, Friðgeir Einarsson and Ragnar Ísleifur Bragason
Audio engineering: Gísli Kjaran Kristjánsson