Aðventa
Frumsýnd í desember 2023.
Sígild skáldsaga í nýrri og óvenjulegri uppfærslu.
„Maður þvælist með hundi og hrút um öræfin í desember, leitar að kindum, hreppir slæm veður en kemst lifandi til byggða …“ Svo segir rithöfundurinn Jón Kalman frá í formála þessarar perlu íslenskrar bókmenntasögu, Aðventu Gunnars Gunnarssonar.
Í byrjun desember 1925 hélt Benedikt Sigurjónsson á fjöll með hund og forystusauð í leit að kindum. Þeir tefjast við smölun fyrir aðra, hreppa slæm veður, leitin dregst á langinn fram yfir jól, nestið klárast og vosbúðin er mikil. Loks ná þeir til byggða, þrotnir að kröftum en með nokkrar kindur. Aðventa byggir á þessari eftirleitarferð Benedikts um Mývatnsfjöll en frásögn hans birtist í tímaritinu Eimreiðinni árið 1931 og varð Gunnari innblástur að hans frægustu skáldsögu.
Aðventa er þó svo miklu meira en saga af kindaleit í vondu veðri, því óveður geisa líka innra með fólki. Í sögunni býr harmræn ástarsaga, leit mannsins að trú og tilgangi, afturlit til ævi sem styttist í annan endann og sú sátt sem hverjum manni er nauðsyn að ná við fortíðina svo lifa megi af en farast ella. Þá er sagan óður til náttúrunnar og dýranna og þeim djúprætta kunnugleik sem líklega næst aðeins milli fjarskyldra dýrategunda.
Í uppsetningu Sviðslistahópsins Rauða sófans verður leitast við að miðla þáttum verksins – stórfenglegri náttúru, ríku innra lífi aðalsöguhetjunnar og samspilinu þar á milli. Sú óvenjulega leið er farin að hafa sýninguna að mestu án orða en þess í stað mynda tónlist, myndlist, leiklist og tækni órofa heild. Áhorfandinn dregst inn í iðandi stórhríð en sér þar hjörtu sem bjarma frá sér kærleika og ást.
Í samstarfi við leikhópinn Rauða sófann.
Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði, Launasjóði sviðslistafólks og Gunnarsstofnun.
Leikgerð byggð á Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson
Leikstjóri: Egill Ingibergsson
Leikarar: Friðgeir Einarsson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Leikmynd og teikningar: Þórarinn Blöndal, Móeiður Helgadóttir og Egill Ingibergsson
Búningar og leikgervi: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir
Lýsing: Egill Ingibergsson
Tónlist og hljóðmynd: Sigurður Halldórsson
Leikgerð: Móeiður Helgadóttir og Egill Ingibergsson
Framkvæmdastjórn: Davíð Freyr Þórunnarson
//
Advent
A play based on Advent by Gunnar Gunnarsson.
Premier in December 2023.
Director: Egill Ingibergsson
Actors: Friðgeir Einarsson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
Set Design and Drawings: Þórarinn Blöndal, Móeiður Helgadóttir, and Egill Ingibergsson
Costumes and Props: Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir
Lighting: Egill Ingibergsson
Music and Sound: Sigurður Halldórsson
Dramatization: Móeiður Helgadóttir and Egill Ingibergsson
Production Management: Davíð Freyr Þórunnarson